Fréttir

SA Greifamótið 14. og 15. október 2017

5.6. og 7. flokks mót í íshokkí verður um helgina í Skautahöllilnni á Akureyri. Um 160 börn munu taka þátt. Mótið hefst laugardaginn 14. október kl 08:00 og lýkur svo um hádegisbil á sunnudag. Mikið líf og fjör verður því á Akureyri um helgina og eigum við á stórskemmtilegri helgi.

Fréttir af kvennalandsliðinu

Kvennalandslið Íslands mun taka þátt á heimsmeistaramótinu í íshokkí sem fram fer í Valdemoro á Spáni dagana 17. - 23. mars á næsta ári. Auk Íslands taka þátt Spánn, Rúmenía, Tyrkland, Nýja Sjáland og Kínverska Tapei (Tævan).

U18 landsliðshópur 2017-2018

Alexander Medvedev þjálfari og Miloslav Racansky aðstoðarþjálfari hafa valið landsliðsæfingahóp U18. Fyrsta landsliðsæfingin verður helgina 13.-14. október og verður hún í Egilshöll.

Félagskipti

Skautafélagið Björninn hefur beðið um félagsskipti fyrir Artjoms Dasutins frá Riga, Lettlandi. Á síðasta tímabili spilaði hann í 1. deildinni í Svíþjóð. Skautafélag Reykjavíkur hefur beðið um félagsskipti fyrir Kristján Friðrik Gunnlaugsson frá UMFK Esju. Félagsskiptagjöld hafa verið greidd og félagsskipti samþykkt.

Leikir helgarinnar

Hertz-deild karla heldur áfram um helgina með tveimur leikjum. Á Akureyri tekur SA-Víkingar á móti Birninum og hefst leikur laugardaginn 7. október kl 16:30 Í Reykjavík tekur Esja á móti SR, í Skautahöllinni í Laugardal, þann 6. október kl 19:45 3.fl leikur verður einnig á Akureyri, laugardaginn 7. október kl 19:00, þegar Jötnar tekur á móti Birninum.

Stelpuhokkídagurinn

Alþjóðlegi stelpu-hokkídagurinn verður á sunnudaginn og verður opið hús í tveimur skautahöllum fyrir allar stelpur. Sunnudagurinn 8. október Skautahöllin í Laugardal, kl. 13-14 Skautahöllin á Akureyri, kl. 13-15 Allar stelpur velkomnar og já líka drengir, mæður, pabbar og systkini. Fjölmennum, prófum barna hokkí og höfum gaman að.

Landsliðsæfing A-landslið karla 13.-15.október

Landsliðsæfingahópur karla í íshokkí hefur verið valinn ásamt því að Jussi Sipponen hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari og Sigurður Sveinn Sigurðsson sem liðsstjóri. Tækjastjóri verður Karvel Þorsteinsson með aðstoð frá Marcin yfirtækjastjóra ÍHÍ. Fyrsta landsliðsæfing verður helgina 13. til 15. október næstkomandi. Hefst helgin á ístíma á föstudagsmorgun og er mæting í Egilshöll kl 08:00.

Alexander Medvedev aðal þjálfari U18

Alexander Medvedev hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari U18 landslið drengja í íshokkí. Alexander hefur komið víða við sem leikmaður og þjálfari og ferill hans hér á EliteProspects, ýta hér. Alexander hefur verið undanfarið þjálfari og leikmaður Bjarnarins í Egilshöll. Áætlað er að fyrsta landsliðsæfing U18 verði föstudagskvöldið 13. október og einnig laugardagskvöldið 14. október, ásamt öðru hópefli. Nánari dagskrá kemur síðar og landsliðshópurinn verður kynntur innan skamms.

Heimsmeistaramótið í íshokkí 2018

Lokakeppni heimsmeistaramótsins í íshokkí fer fram í Danmörku og hefst 4. mai 2018. Miðasala er í fullum gangi og nú þegar hefur verið seldir yfir 100þúsund miðar á mótið.

Ynjur - Ásynjur

Óvænt atvik átti sér stað í leik Ynja-Ásynja þann 26. september síðastliðinn sem varð til þess að dómari flautaði leikinn af í lok annars leikhluta. Þegar dómari flautaði leikinn af þá var staðan 1-2 fyrir Ásynjum. Það staðfestist hér með að leikurinn stendur og lokaúrslit eru því 1-2 fyrir Ásynjum.