Hlutverk ritara leiksins er að sjá um uppsetningu leikskýrslu fyrir leik og sjá til þess að hún sé undirrituð af þjálfurum liðanna nokkru áður en leikur hefst.
Á meðan leik stendur ritar ritari mörk, refsingar og annað það sem í skýrslunni á að vera, ritari ber einnig ábyrgð á að dómar séu rétt skráðir upp á stigatöfluna, hann þarf að tilkynna til dómara ef villa er í skráðum tíma á stigatöflu og réttum tíma leiksins.
Ritari þarf einnig að sjá til þess að allar leiðréttingar sem dómarinn óskar eftir séu framkvæmdar, hann þarf að láta dómara vita ef einhver fær annan Misconduct (10 mín) dóm í sama leiknum og að láta dómarann vita ef einhver tekur þátt í leiknum sem er ekki á samþykktri leikskýrslu.
Að loknum leik sér ritari til þess að dómari undirriti skýrsluna þannig að leiknum sé lokað, þá þarf hann að sjá til þess að afrit af leikskýrslunni
berist skrifstofu ÍHÍ og að dómarinn fái með sér afrit af skýrslunni óski hann eftir því.
Ritari þarf einnig að láta dómarann vita ef leikmaður sé ekki á leikskýrslu áður en leikur hefst eftir stopp.
Starfsmaður sem sinnir hlutverki ritara þarf að hafa náð 18 ára aldri.