U17 kvk

Í U17 kvenna skal spilað á heilu svelli. Engin upphitun er á ís fyrir þennan flokk. Leiktíminn er 3 x 15 mínútur þar sem 1. og 2. lota er á rúllandi klukku og 3. lota á stoppklukku. Hefla skal fyrir þriðju lotu. Milli 1. og 2.lotu er stutt 2 mínútna hlé en á milli annarrar og þriðju lotu skal hafa 15 mínútna hlé og heflun.

U17 mót eru spiluð sem mótaröð líkt og U14, í heild þrjú mót yfir árið. Mótshaldari skal taka að sér gerð leikskýrslu sem heldur utan um stig og refsingar einstaka leikmanna.

Mönnun leikja

Í U17 er lágmarks mönnun á leikjum 4 starfsmenn í refsiboxi til þess að leikur geti farið fram af öryggisástæðum. Þeir starfsmenn skulu sinna stöðum hliðvarða (tveir), tímavarðar og leikskýrslu.  Æskilegt er að sá sem tekur að sér hlutverk tímavarðar eða ritara leikskýrslu sé kynnir leiksins.

Tölfræði

  1. Í U18 og U22 eru rituð niður skot á mark fyrir hvern leikmann og leikmanna línur þegar skorað er

Æskilegt er að starfsmaður sem tekur niður tölfræði fyrir skot á mark hjá öllum leikmönnum sitji í stúkunni.

Upplýsingarnar má þó skrá hvaðan sem er, eins lengi að viðkomandi hafi góða yfirsýn yfir leikvöllinn.

Hliðverðir skrá niður þá leikmenn sem eru inn á vellinum þegar mörk eru skoruð. 

Hliðvörður fyrir lið A tekur niður númer leikmanna í liði A og hliðvörður fyrir lið B tekur niður númer leikmanna í liði B. 

Upplýsingarnar eru gefnar ritara eftir hvert mark.

Refsingar | Framlengingar

Framlengingar

  1. Náist ekki úrslit í venjulegum leiktíma, skal háð vítakeppni án þess að fari fram framlenging.  Þriggja mínútna hlé er gert á leik þar til vítakeppni hefst. Hefill skal þurrhefla u.þ.b 14 metra breitt svæði frá marki til marks. Hvort lið tekur 3 víti sem tekin eru af sitthvorum leikmanninum.
  2. Náist ekki úrslit í vítakeppni skal háður víta-bráðabani. Heimilt er að nota alla leikmenn liðsins í víta-bráðabana og/eða sama leikmanninn aftur og aftur. Leikmaður eða leikmenn sem eru að taka út refsingu í refsiboxi þegar vítakeppni hefst eða hefur verið vísað af velli geta ekki tekið víti.