Markadómari

Í upphafi hvers leikhluta eiga markadómarar að fylgjast með þeim aðaldómara sem sér um dómarauppkastið. Þegar hann biður um það þá eiga þeir að staðfesta að þeir og búnaður þeirra sé tilbúin með því að kveikja á rauða ljósinu.

Hlutverk markadómara er að fylgjast með hvort pökkurinn fari yfir markalínu á því marki sem þeir sitja við og bera ábyrgð á. Ef það gerist kveikja þeir á rauða ljósinu og láta það lýsa þar til aðaldómari hefur örugglega gefið merki annaðhvort mark eða ekki mark.

Þeir eiga líka að skrá niður fjölda skota á mark, pökkurinn verður þá að hafa stefnt inn í markið áður en markmaðurinn eða einhver annar leikmaður nær að stöðva hann. Ekki telst með ef pökkurinn stefnir á stangirnar eða utan við þær.

Ef aðaldómari óskar eftir því að tala við markadómara þá á hann að gera það og svara eingöngu spurningum dómara í stuttu máli.  Við lok hvers leikhluta á markadómari að skila inn upplýsingum um skot á mark til ritara.

Starfsmaður sem sinnir hlutverki markadómara þarf að hafa náð 18 ára aldri.