Fréttir

Landslið kvenna 2019

Landsliðshópurinn mun leggja af stað í nótt til Stokkhólm þar sem leiknir verða tveir leikir á móti sænskum félagsliðum. Landsliðið mun svo halda áfram för sinni til Brasov Rúmeníu og tekur þar þátt í heimsmeistaramótinu í íshokkí, 2019 IIHF Women´s World Championship Div II B. Nánari upplýsingar um mótið og streymi frá leikjum má finna á heimasíðu alþjóðaíshokkísambandsins, ýta hér.

Landslið U18 - Heimsmeistaramótið í Búlgaríu

Landslið U18 í íshokkí hefur verið síðustu daga á landsliðsæfingu í Bratislava, Slóvakíu. Landsliðið spilaði æfingaleik á móti Mexikó og gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 6-4. Landsliðshópurinn flaug frá Bratislava til Búlgaríu í dag og tekur svo þátt í 2019 IIHF U18 World Championship Div III.

Bikarmót U14 - Greifabikarinn

Um helgina fór fram á Akureyri bikarmót Íshokkísambands Íslands fyrir aldurshóp U14. Skautafélag Akureyrar var framkvæmdaraðili mótsins og tók á móti liðum frá SR og Fjölni.

SA Víkingar Íslandsmeistarar 2019

SA-Vík­ingar urðu um helg­ina Íslands­meist­arar karla í ís­hokkí 2019 . Í úr­slita­ein­víg­inu í ár mætti SA liði SR og lauk því ein­vígi á laug­ar­dag með þriðja sigri Ak­ur­eyr­inga. SA-Vík­ing­ar höfðu unnið tvo fyrstu leiki ein­víg­is­ins 3-2 og loka­leik­ur­inn fór 4:1.

Úrslitakeppni karla í íshokkí 2019

Úrslitakeppni karla hefst í kvöld, þriðjudagskvöldið 12. mars og hefst leikur kl 19:30 í Skautahöllinni á Akureyri. SA Víkingar taka á móti Skautafélagi Reykjavíkur. Það lið sem verður fyrr til að vinna þrjá leiki mun hampa Íslandsmeistaratitlinum og því spennandi dagar framundan hjá hokkíáhugafólki.

Úrskurður Aganefndar 11. mars 2019

Íshokkí helgi framundan