Fréttir

Úrslitakeppni karla í íshokkí 2018

Þann 3. apríl hefst úrslitakeppni karla í íshokkí og leiknir verða hið minnsta þrír leikir og allt hið mesta fimm leikir. Það lið sem knýr fram sigur í þremur leikjum er íslandsmeistari 2018. Nú skulum við fjölmennna á öllum leikjum úrslitakeppninnar.

Heimsmeistaramót U18 í íshokkí er hafið

Landslið Íslands U18 er mætt til Zagreb í Króatíu og tekur þar þátt í heimsmeistaramóti í íshokkí. Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Króatía, Kína, Serbía, Holland og Spánn. Riðillinn er mjög sterkur og fróðlegt verður að sjá hvernig leikir fara. Ísland tapaði fyrir Spán í fyrsta leik og einnig gegn Kína í öðrum leik.

Kvennalandslið Íslands í 3ja sæti á heimsmeistaramótinu

Kvennalandslið Íslands í íshokkí fékk brons medalíu um hálsinn á heimsmeistaramótinu sem stóð yfir dagana 17.-23. mars síðastliðinn. Mótið var haldið í Valdemoro sem er rétt sunnan við Madrid á Spáni. Þáttöku þjóðir auk Íslands voru Rúmenía, Tyrkland, Spánn, Nýja Sjáland og Kínverska Tapei.

Ótrúlegur sigur hjá kvennalandsliðinu í íshokkí á móti Nýja-Sjálandi

Í þessum töluðu orðum var æsispennandi viðureign Íslands og Nýja-Sjálands að ljúka, var þetta annar leikur íslenska kvennalandsliðsins í íshokkí á heimsmeistaramóti kvenna sem fram fer í Valdemoro á Spáni. Leikurinn endaði í framlengingu og svo vítakeppni þar sem íslenska liðið stóð uppi sem sigurvegari. Óhætt er að segja að Sarah Smiley, leikmaður Skautafélags Akureyrar, hafi verið stjarna leiksins, með 5 mörk í það heila og 2 stoðsendingar.

Heimsmeistaramót kvenna heldur áfram

Í gærkvöldi tapaði íslenska kvennalandsliðið i íshokkí naumt á móti sterku liði Spánar. Í fyrri viðureignum liðanna hafa þær spænsku ávallt haft betur en í gær var íslenska liðið mjög nálægt sigri. Leiknum lauk 2-1 fyrir Spáni sem skorðu sigurmarkið þegar einungis 50 sekúndur voru eftir af fullum leiktíma. Silvía Björgvinsdóttir hjá Skautafélagi Akureyrar skoraði eina mark Íslands í fyrstu lotu en að öðru leyti einkenndist lotan af ákveðinni taugaveiklun af hálfu íslenska liðsins og þær virtust ekki finna sinn takt en fengu þó ekki á sig mark.

Heimsmeistaramót kvenna hefst i dag

Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí er komið til Spánar, Valdemoro, rétt sunnan við Madrid og mun hefja leik á heimsmeistaramótinu í 2.deild B riðil, Women´s World Championship Div II-group B, kl 19:15 á íslenskum tíma í dag. Um er að ræða opnunarleik mótsins og er mótherjinn landslið Spánar. Auk Íslands og Spánar munu Nýja Sjáland, Chinese Tapei, Rúmenía og Tyrkland taka þátt. Leikur dagsins er án efa einn sá erfiðasti í þessum riðli og verður spennandi að fylgjast með framgangi leiksins, en hann verður í beinni útsendingu á vef Alþjóða íshokkisambandsins, Ýta hér. Íslenska landsliðið er í 30. sæti á heimslistanum og Spánn er í 26. sæti.

Fundur Aganefndar 22. mars 2018

Úrslitakeppni í Hertz-deild kvenna hefst í dag

Skautafélag Akureyrar, SA Ynjur og SA Ásynjur tryggðu sér keppnisrétt í úrslitum kvenna í Hertz-deildinni um helgina og nú hefst úrslitakeppnin.