Fréttir

Heimsmeistaramót IIHF 2027

Í dag á þingi IIHF, sem haldið er í Zürich í Sviss, voru heimsmeistaramót IIHF ákveðin. Ákveðnar breytingar hafa verið gerðar á mótafyrirkomulaginu bæði hjá körlum og konum. Segja má að íslendingar munu ferðast vítt og breytt um heiminn á komandi keppnistímabili en U18 kvenna mun leika á sínu móti sem verður haldið á Akureyri í janúar 2027.

Skrifstofa ÍHÍ verður lokuð til 22.maí

Vegna veikinda verður skrifstofa ÍHÍ lokuð fram til föstudagsins 22. maí næstkomandi. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning á meðan á þessu tímabili stendur.

Æfingabúðir fyrir U18 pilta og markmenn 14.-16. maí - nafnalisti og skráningarhlekkur