Heimsmeistaramót IIHF 2027

Í dag á þingi IIHF, sem haldið er í Zürich í Sviss, voru heimsmeistaramót IIHF ákveðin.  Ákveðnar breytingar hafa verið gerðar á mótafyrirkomulaginu bæði hjá körlum og konum.   Segja má að íslendingar munu ferðast vítt og breytt um heiminn á komandi keppnistímabili en U18 kvenna mun leika á sínu móti sem verður haldið á Akureyri í janúar 2027.

Komandi mót 2027:

  • A-landsliðs karla - Kyrgistan, Bisek, 28.mars - 3. apríl 2027
  • A-landslið kvenna - Litháen, Electranai,  8. - 14. nóvember 2027
  • U20 karla - Tyrkland, Istanbul, 18. - 24.janúar 2027
  • U18 karla - Óákveðið 
  • U18 kvenna - Ísland, Akureyri,  11. - 17.janúar 2027

Ákvörðun um mót U18 karla verður tekin á milliþingi IIHF sem haldið verður í september 2026.