Fréttir

U18 á ferðinni VI

Tók því miður ekki mikið af myndum í dag en hér er smá samantekt. Vídeóin eru í fullri lengd í möppunni góðu. Eins og þið vitið þá náðum við að landa sigri enn einu sinni með dramatískum hætti. Þessir snillingar eru ekkert að fara auðveldu leiðina að þessu.

U18 á ferðinni V

Góðan daginn héðan frá Taiwan. Eftir erfiðan leik í gær voru strákarnir nokkuð lúnir. Enda ekki skrýtið þar sem þetta var hörkuleikur. Mexikóarnir spiluðu mun fastar en við vorum búnir að sjá þá gegn öðrum liðum. Það kom okkar strákum töluvert á óvart og varð til þess að það tók þá tíma að bregðast við.

U18 á ferðinni IV

Við höldum áfram að henda hérna inn foreldradagbókinni af Facebook. Myndbönd og myndir eru svo á sínum stað einsog áður.

U18 á ferðinni III

Í dag er enginn leikur hjá okkur. En að sjálfsögðu er æfing og strákarnir mættu á svellið kl. 9:15. Fyrsta verk var að stilla sér upp fyrir ljósmyndara til þess að taka liðsmynd. Og eins og þið sjáið þá er þetta glæsilegur hópur.

U18 á ferðinni II

Við höldum bara áfram að birta facebook færslur fararstjórans þótt við séum svolítið eftirá. Það sem öllu máli skiptir er að gullið er okkar.

U18 á ferðinni

Á meðan HM-mót í karlaflokki er undirbúið á fullu hérna heima er U18 ára liðið okkar statt í Taívan á HM-móti þar. Árni Geir fararstjóri hefur skrifað fréttir á facebook síðu liðsins til að halda foreldrum unganna upplýstum um hvað er í gangi. Við skellum parti af því hér á síðuna hjá okkur svona til að halda sögunni til haga.

SA - SR 5. LEIKUR Í ÚRSLITUM - UMFJÖLLUN

Fimmti leikurinn í úrslitum fór fram í gærkvöld þegar Skautafélag Reykjavíkur tók á móti Skautafélagi Akureyrar. Leiknum lauk með sigri SA sem gerði sjö mörk án þess að SR-inum tækist að svara fyrir sig. Með sigrinum tryggðu Skautafélag Akureyrar sér íslandsmeistaratitilinn 2015 en liðið vann seríuna 4 - 1.

SA - SR 4. LEIKUR Í ÚRSLITUM - UMFJÖLLUN

Fjórði leikurinn í úrslitakeppni karla fór fram á föstudagskvöld þegar Skautafélag Akureyrar bar sigurorð af Skautafélagi Reykjavíkur með fjórum mörkum gegn einu. Staðan í einvíginu er því 3 – 1 SA-mönnum í vil en það lið sem fyrr verður til að vinna fjóra leiki hampar titlinum. Næsti leikur er á morgun, mánudag, en þá mætast liðin í Laugardalnum og hefst sá leikur klukkan 19.00.

Úrskurður Aganefnar 21.03.2015

Úrskurður Aganefndar 20.03.2015