Fréttir

Nýir leikmenn SR

Skautafélag Reykjavíkur hefur óskað eftir félagsskiptum fyrir tvo leikmenn. Patrik Löbl og Daniel Vlach, báðir frá Tékklandi. Félagaskiptagjald hefur verið greitt, erlenda sambandið hefur samþykkt félagaskipti og eru því leikmenn löglegir.

Æfingabúðir kvennalandsliðs desember 2017

Næstu æfingabúðir kvennalandsliðsins verða á Akureyri í desember. Jenny Potter hefur sett saman lista af leikmönnum sem boðin er þátttaka, alls eru þetta 27 leikmenn en 20+2 leikmenn halda svo utan á heimsmeistaramótið á Spáni í mars næstkomandi.

Leikir kvöldsins, þriðjudagskvöld 24.október 2017

Í kvöld fara fram tveir leikir. Fyrri leikurinn hefst kl 19:30 og eru það Ynjur sem taka á móti Ásynjum í Skautahöllinni á Akureyri. Síðari leikurinn er 2.fl leikur, sem leikinn verður í Egilshöll, þar sem Björninn tekur á móti SR. Hefst sá leikur kl 19:45. Nú er um að gera að koma sér á leik, aðgangur ókeypis og tilvalið fyrir alla fjölskylduna.

Landsliðsæfing 13. - 15. október 2017

Landsliðsæfingar karla og U18 fara fram um helgina, 13. 15. október, í Egilshöll. Landsliðsæfing karla hefst kl 08:00 á föstudagsmorgun. Landsliðsæfing U18 hefst kl 18:00 á föstudagskvöldi.

SA Greifamótið 14. og 15. október 2017

5.6. og 7. flokks mót í íshokkí verður um helgina í Skautahöllilnni á Akureyri. Um 160 börn munu taka þátt. Mótið hefst laugardaginn 14. október kl 08:00 og lýkur svo um hádegisbil á sunnudag. Mikið líf og fjör verður því á Akureyri um helgina og eigum við á stórskemmtilegri helgi.

Fréttir af kvennalandsliðinu

Kvennalandslið Íslands mun taka þátt á heimsmeistaramótinu í íshokkí sem fram fer í Valdemoro á Spáni dagana 17. - 23. mars á næsta ári. Auk Íslands taka þátt Spánn, Rúmenía, Tyrkland, Nýja Sjáland og Kínverska Tapei (Tævan).

U18 landsliðshópur 2017-2018

Alexander Medvedev þjálfari og Miloslav Racansky aðstoðarþjálfari hafa valið landsliðsæfingahóp U18. Fyrsta landsliðsæfingin verður helgina 13.-14. október og verður hún í Egilshöll.

Félagskipti

Skautafélagið Björninn hefur beðið um félagsskipti fyrir Artjoms Dasutins frá Riga, Lettlandi. Á síðasta tímabili spilaði hann í 1. deildinni í Svíþjóð. Skautafélag Reykjavíkur hefur beðið um félagsskipti fyrir Kristján Friðrik Gunnlaugsson frá UMFK Esju. Félagsskiptagjöld hafa verið greidd og félagsskipti samþykkt.

Leikir helgarinnar

Hertz-deild karla heldur áfram um helgina með tveimur leikjum. Á Akureyri tekur SA-Víkingar á móti Birninum og hefst leikur laugardaginn 7. október kl 16:30 Í Reykjavík tekur Esja á móti SR, í Skautahöllinni í Laugardal, þann 6. október kl 19:45 3.fl leikur verður einnig á Akureyri, laugardaginn 7. október kl 19:00, þegar Jötnar tekur á móti Birninum.

Stelpuhokkídagurinn

Alþjóðlegi stelpu-hokkídagurinn verður á sunnudaginn og verður opið hús í tveimur skautahöllum fyrir allar stelpur. Sunnudagurinn 8. október Skautahöllin í Laugardal, kl. 13-14 Skautahöllin á Akureyri, kl. 13-15 Allar stelpur velkomnar og já líka drengir, mæður, pabbar og systkini. Fjölmennum, prófum barna hokkí og höfum gaman að.