Fréttir

Félagaskipti

Úrskurður Aganefndar 27. október 2019

Landsliðs-æfingahópur U18

Miloslav Racanský og Hafþór Andri Sigrúnarson landsliðsþjálfarar U18 hafa valið landsliðsæfingahóp sem mun koma til landsliðsæfingar 8.-10. nóvember næstkomandi. Landsliðsæfingin verður í Skautahöllinni á Akureyri. Nánari dagskrá landsliðsæfingar mun verða birt á spjallsíðu hópsins á Facebook.

Hertz-deild karla. Fjölnir/Björninn vs SR

Í kvöld mætast Fjölnir/Björninn og SR í Egilshöll, í Hertz-deild karla. Leikurinn hefst kl 19:45 og má búast við hörkuleik.

Dómarar ÍHÍ taka þátt í heimsmeistaramótum IIHF 2020

Alþjóða íshokkísambandið (IIHF) hefur boðið sjö dómurum Íshokkísambands Íslands (ÍHÍ) að taka þátt í dómgæslu á heimsmeistaramótum IIHF þetta tímabilið. Óli Þór Gunnarsson, Sindri Gunnarsson, Leon Hafsteinsson, Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Sæmundur Þór Leifsson, Ingibjörg G. Hjartardóttir og Vilhelm Már Bjarnason fengu boð um þátttöku en því miður þá verður Vilhelm upptekinn á þeim tíma sem hann fékk úthlutað og kemst því ekki að sinni.

Greifamótið 12. og 13. október 2019 Skautafélag Akureyrar

Barnamót Skautafélags Akureyrar, Greifamótið, verður haldið um helgina, 12. og 13. október í Skautahöllinni á Akureyri. Mótið hefst kl 8 laugardagsmorgun og lýkur á hádegi sunnudag. Það er veitingahúsið Greifinn sem er aðal styrktaraðili mótsins.

Aganefnd - myndbandsupptökur