06.04.2017
Þriðji leikur 2017 IIHF ICE HOCKEY WORLD CHAMPIONSHIP Div. II Group A er Ísland-Rúmenía og hefst leikur kl 17:00 á íslenskum tíma.
Beina útsendingu má finna á heimasíðu Alþjóða Sambandsins IIHF. Ýta hér.
Stöndum saman og öskrum okkur hás hér heima.
Nánari fréttir og beina lýsingu má finna hjá Andra Yrkil á www.mbl.is/sport/ishokki Ýta hér.
02.04.2017
A landslið karla er komið til Galati, Rúmeníu og mun taka þátt í heimsmeistaramóti karla í annarri deild, riðli A, eða 2017 IIHF ICE HOCKEY WORLD CHAMPIONSHIP Div. II Group A. Mótið fer fram 3. til 9. apríl næstkomandi. Þáttökuþjóðir auk Íslands, eru Spánn, Ástralía, Rúmenía, Belgia og Serbía.
02.04.2017
Skautafélag Akureyrar, 3. flokkur er Íslandsmeistari 2017 í íshokkí.
Lið SA samanstendur af frábærum drengjum og stúlkum og hafa þau sýnt og sannað í vetur að þau eru vel að þessum sigri komin.
Innilegar hamingjuóskir frá Íshokkísambandi Íslands og gangi ykkur öllum vel í framtíðinni.
01.04.2017
Nú um helgina er U13 lið frá Skautafélagi Akureyrar og Birninum á íshokkí móti í Farsta Ishall sem er suður af Stokkhólm. Fjögur lönd keppa á þessu móti, Ísland, Svíþjóð, Noregur og Finland.
29.03.2017
Hertz deild karla og kvenna er lokið þetta starfsárið en annað íshokkí heldur áfram. Næstu daga eru leikir í 3. flokk, 5.6 og 7. flokkur með mót í Skautahöllinni Laugardal og A-landslið karla fer til Rúmeníu á heimsmeistaramót.
24.03.2017
SA Víkingar og UMFK Esja áttust við í gærkvöldi í öðrum leik liðanna í úrslitum karla í Hertz-deild karla. Leikurinn átti sér stað í Skautahöllinni á Akureyri fyrir fullu húsi aðdáenda.
Esjumenn lögðu SA Víkinga 3:2 í leiknum og geta klárað einvígið á laugardag með sigri og orðið Íslandsmeistarar í fyrsta skipti.
23.03.2017
Úrslitakeppni meistaraflokks karla heldur áfram í kvöld, fimmtudaginn 23. mars í Skautahöllinni á Akureyri og hefst leikur klukkan 19:30. Um er að ræða leik númer tvö í úrslitakeppninni þar sem SA Víkingar taka á móti UMFK Esju. Fyrsta leik í úrslitakeppni lauk með sigri Esju.
Spilaðir verða 5 leikir á níu dögum ef til þess þarf og það lið sem vinnur fyrst þrjá leiki hampar íslandsmeistaratitlinum.
22.03.2017
UMFK Esja tók á móti Skautafélagi Akureyrar í Laugardal í gærkvöldi í fyrsta leik liðanna í úrslitum Hertz-deildar karla í íshokkí.
Leikurinn var stórskemmtilegur og hraður, Esja komst í 3:0 fyrir síðasta leikhlutann, en þar skoraði SA þrjú mörk og jafnaði leikinn. Björn Róbert Sigurðarson skoraði sigurmark Esju eftir tæpar 3 mínútur voru liðnar í framlengingu.
Mjög margir komu í Skautahöllina í Laugardal, stúkan var nánast full og frábær leikur Esju og SA.
Næsti leikur í úrslitum er í Skautahöllinni á Akureyri, kl 19:30 á fimmtudaginn kemur. Nú er um að gera að fylgjast með, skella sér í höllina og hvetja sitt lið áfram. Þeir sem verða fjarri góðum leik, geta fylgst með í beinni útsendingu á www.oz.com/ihi
19.03.2017
Mikill hokkídagur framundan í Belgrade, Serbíu. Staðan mögnuð og spennan mikil. Astralía, Spánn, Serbía og Holland eru öll með 9 stig fyrir daginn í dag, Belgia og Ísland reka lestina og eiga þessi tvö síðast nefndu leik núna kl 16:30 í dag og er því einn mikilvægasti leikur Íslands í mótinu. Með sigri í þessum leik halda drengirnir sér í núverandi styrkleikaflokki.