Fréttir

Leikir dagsins 19. desember 2017

Hertz-deild karla heldur áfram með leik Bjarnarins og Umfk Esju. Hefst leikur kl 19:45 í Egilshöll. Um er að ræða leik no 22 í mótaröðinni og er staðan í deildinni æsispennandi. Bæði lið eiga góða möguleika á að komast í úrslitakeppni og hver leikur dýrmætur. Fjölmennum í Egilshöll, sjoppan opin og fjölskylduvænn viðburður.

Leikir helgarinnar 15. og 16. desember 2017

Hertz-deild karla heldur áfram með tveim leikjum um helgina, annar í Laugardalnum og hinn á Akureyri. Um að gera að mæta og horfa á frábæra leiki.

Robbie Sigurðsson íshokkímaður ársins 2017

Robbie Sigurðsson hefur verið valinn íshokkímaður ársins 2017 af stjórn Íshokkísambands Íslands.

Eva María Karvelsdóttir íshokkíkona ársins 2017

Eva María Karvelsdóttir var valin íshokkíkona ársins 2017 af stjórn Íshokkísambands Íslands. Eva María er vel að þessu komin enda frábær leikmaður í alla staði. Hún spilar með Ásynjum í Skautafélagi Akureyrar og hefur um árabil spilað með landsliði Íslands í íshokkí.

Landsliðsæfing U20, 5.-7. janúar 2018

Jussi Sipponen og Alexander Medvedev hafa valið landslið U20 í íshokkí sem fer til Sofia í Búlgaríu 22.-28. janúar 2018. Landsliðsæfing verður helgina 5. 6. og 7. janúar 2018, dagskrá verður birt síðar.

Landsliðsæfing 1.-3. desember 2017

Vladimir Kolek og Jussi Sipponen hafa valið landsliðs-æfingahóp fyrir landsliðsæfinguna 1.-3. desember næstkomandi Landsliðsæfingin verður í Egilshöll. Nánari dagskrá send út síðar, en fyrsti fundur verður kl 18:00, föstudaginn 1. desember.

Íshokkíhelgi 10.-12. nóvember

Næstkomandi helgi er stór íshokkíhelgi. Tveir leikir í Hertz-deild karla, einn leikur í Hertz-deild kvenna, einn 3.fl leikur og svo stórskemmtilegt 4.fl. mót á Akureyri.

Landsliðsæfingahópur í íshokkí - U20

Landsliðsæfingahópur U20 hefur verið valinn. Landsliðsæfing verður haldin 8. 9. og 10. desember og verður æfingin í Skautahöllinni á Akureyri.

Félagaskipti

Síðasti dagur fyrir erlend félagaskipti voru 31. október síðastliðinn. Þann dag bárust þrjár beiðnir um félagaskipti: Andrej Mrazik frá Slóvakíu og Daniel Triesler frá Bandaríkjum til Umfk Esju, og svo Timothy Noting frá Svíþjóð til Skautafélags Akureyrar. Félagaskiptagjöld hafa verið greidd og erlendu sérsamböndin hafa staðfest. Eru því ofangreindu leikmenn löglegir í næstu leiki Hertz-deildar karla á Íslandi.

Nýir leikmenn SR

Skautafélag Reykjavíkur hefur óskað eftir félagsskiptum fyrir tvo leikmenn. Patrik Löbl og Daniel Vlach, báðir frá Tékklandi. Félagaskiptagjald hefur verið greitt, erlenda sambandið hefur samþykkt félagaskipti og eru því leikmenn löglegir.