Fréttir

Landsliðsæfingar karla 2018-2019

Vladimir Kolek og Jussi Sipponen landsliðsþjálfarar karla í íshokkí hafa skipulagt landsliðsæfingar sem hér segir; 7. til 9. desember 2018. Landsliðsæfing og æfingaleikur. Áætlað er að landslið Íslands keppi á móti úrvalsliði erlendra leikmanna. 29. til 31. mars 2019. Landsliðsæfing í Reykjavík.

Félagaskipti 2018

Aðildarfélög Íshokkísambands Íslands hafa óskað eftir félagaskiptum fyrir neðangreinda leikmenn. Félagaskiptagjald hefur verið greitt og leikheimild gefin út.

2.fl. Íshokkí um helgina á Akureyri

Tveir leikir fara fram um helgina í Íslandsmóti 2.fl. Skautafélag Akureyrar tekur á móti Skautafélagi Reykjavíkur. Fyrri leikurinn fer fram laugardaginn 14. april kl 16:30 og síðari leikurinn fer fram kl 10:30 á sunnudagsmorgun.

Landslið Íslands í íshokkí 2018 - HM í Hollandi

Vladimir Kolek og Jussi Sipponen landsliðsþjálfarar hafa valið loka hóp karla landslið Íslands í íshokkí sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu í íshokkí, sem hefst 23. apríl næstkomandi í Hollandi.

SA Víkingar Íslandsmeistararar 2018

Íshokkísamband Íslands óskar Skautafélagi Akureyrar, SA Víkingum, með Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla árið 2018.

Úrslitakeppni karla í íshokkí 2018

Þann 3. apríl hefst úrslitakeppni karla í íshokkí og leiknir verða hið minnsta þrír leikir og allt hið mesta fimm leikir. Það lið sem knýr fram sigur í þremur leikjum er íslandsmeistari 2018. Nú skulum við fjölmennna á öllum leikjum úrslitakeppninnar.

Heimsmeistaramót U18 í íshokkí er hafið

Landslið Íslands U18 er mætt til Zagreb í Króatíu og tekur þar þátt í heimsmeistaramóti í íshokkí. Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Króatía, Kína, Serbía, Holland og Spánn. Riðillinn er mjög sterkur og fróðlegt verður að sjá hvernig leikir fara. Ísland tapaði fyrir Spán í fyrsta leik og einnig gegn Kína í öðrum leik.

Kvennalandslið Íslands í 3ja sæti á heimsmeistaramótinu

Kvennalandslið Íslands í íshokkí fékk brons medalíu um hálsinn á heimsmeistaramótinu sem stóð yfir dagana 17.-23. mars síðastliðinn. Mótið var haldið í Valdemoro sem er rétt sunnan við Madrid á Spáni. Þáttöku þjóðir auk Íslands voru Rúmenía, Tyrkland, Spánn, Nýja Sjáland og Kínverska Tapei.

Ótrúlegur sigur hjá kvennalandsliðinu í íshokkí á móti Nýja-Sjálandi

Í þessum töluðu orðum var æsispennandi viðureign Íslands og Nýja-Sjálands að ljúka, var þetta annar leikur íslenska kvennalandsliðsins í íshokkí á heimsmeistaramóti kvenna sem fram fer í Valdemoro á Spáni. Leikurinn endaði í framlengingu og svo vítakeppni þar sem íslenska liðið stóð uppi sem sigurvegari. Óhætt er að segja að Sarah Smiley, leikmaður Skautafélags Akureyrar, hafi verið stjarna leiksins, með 5 mörk í það heila og 2 stoðsendingar.

Heimsmeistaramót kvenna heldur áfram

Í gærkvöldi tapaði íslenska kvennalandsliðið i íshokkí naumt á móti sterku liði Spánar. Í fyrri viðureignum liðanna hafa þær spænsku ávallt haft betur en í gær var íslenska liðið mjög nálægt sigri. Leiknum lauk 2-1 fyrir Spáni sem skorðu sigurmarkið þegar einungis 50 sekúndur voru eftir af fullum leiktíma. Silvía Björgvinsdóttir hjá Skautafélagi Akureyrar skoraði eina mark Íslands í fyrstu lotu en að öðru leyti einkenndist lotan af ákveðinni taugaveiklun af hálfu íslenska liðsins og þær virtust ekki finna sinn takt en fengu þó ekki á sig mark.