Fréttir

Úrskurður Aganefndar 19. september 2017

SR tekur á móti SA-Víkingum, þriðjudaginn 19. september

Hertz-deild karla heldur áfram þriðjudaginn 19. september, þegar Skautafélag Reykjavíkur tekur á móti Skautafélagi Akureyrar-Víkingum. Leikurinn fer fram í Skautahöllinni Laugardal og hefst leikur kl 19:45. Nú er um að gera að fjölmenna og hafa gaman að.

Leikir dagsins -16. september 2017

Hertz-deild kvenna heldur áfram í dag þar sem Ynjur taka á móti Reykjarvíkurliðinu SR/Björninn.

Lánssamningur Jóhann Björgvin Ragnarsson

Skautafélagið Björninn og Skautafélag Reykjavíkur hafa komið sér saman um lánsamning vegna Jóhanns Björgvins Ragnarssonar markmanns. Jóhann Björgvin Ragnarsson mun í vetur spila með Birninum í 2fl íslandsmóts í íshokkí. Þessi samningur er samþykktur af ÍHÍ.

Félagsskipti - Transfer

Það tilkynnist hér með að Björninn hefur óskað eftir félagsskiptum fyrir Roddy Akeel frá USA, Esja hefur óskað eftir félagsskiptum fyrir Petr Kubos frá Czeck Ice Hockey og svo hefur Skautafélag Akureyrar óskað eftir félagskiptum frá Canada. Félagaskiptagjald hefur verið greitt og eru leikmenn samþykktir.

Landslið U20 - Jussi Sipponen

Jussi Sipponen hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari U20 í íshokkí. Jussi Sipponen var fæddur í Naantali, Finlandi þann 17. september 1980 og hefur verið búsettur á Akureyri síðustu árin. Jussi er landsþekktur innan íshokkíhreyfingarinnar á Íslandi, hefur meðal annars þjálfað meistaraflokk karla og kvenna Skautafélags Akureyrar og var þjálfari kvennalandsliðsins í íshokkí síðustu tvö árin.

Félagsskipti - Transfer

Aðildarfélög ÍHÍ hafa óskað eftir félagsskiptum fyrir eftirtalda leikmenn. Þessi félagsskipti eru samþykkt og hafa félagaskiptagjöld verið greidd.

Leikir helgarinnar

Hertz-deild karla og kvenna, helgina 8. og 9. september verða sem hér segir:

Félagaskipti - Skautafélag Akureyrar

Skautafélag Akureyrar hefur óskað eftir félagsskiptum fyrir eftirtalda leikmenn. Þessi félagsskipti eru samþykkt og hefur félagaskiptagjald verið greitt. Jón Hlífar Aðalsteinsson Hrund Thorlacius Harpa María Benediktsdóttir Jussi Sipponen

SR lagði Björninn að velli í Egilshöll í kvöld

Skautafélagið Björninn tók á móti Skautafélagi Reykjavíkur í kvöld í 2.fl og gerðu gestirnir sér litið fyrir og lögðu Björninn að velli í fyrsta leik tímabilsins. Loka staða 3-10 fyrir SR. Viktor Ísak lagði grunninn að sigri SR-inga með marki á fyrstu mínútu. Sölvi Freyr skoraði fjögur mörk, Kári tvö mörk, Hákon Orri, Birkir Kári og Jóhann eitt mark hver. Í liði Bjarnarins skoraði Oliver Ali, Maríana og Hilmar eitt mark hver. Má sanni segja að leikurinn hafi verið hraður og skemmtilegur. Búast má við hörkuskemmtilegum vetri þar sem allt getur gerst.