Yfirlýsingar vegna yngri leikmanna

Nú þegar örfáir dagar eru þar til leikir tímabilsins fara í gang er rétt að minna alla á að strangar reglur gilda um yngri leikmenn og ef óskað er eftir undanþágum frá þessum reglum þarf að sækja um það til skrifstofu ÍHÍ til að leikmaðurinn sé löglegur leikmaður. 

Um þetta er fjallað í reglugerð númer 13 grein 6. þar segir m.a.

„Leikmenn sem spila með meistaraflokki karla þurfa að ná 15 ára aldri á árinu sem spilað er á og leikmenn sem spila með meistaraflokki kvenna þurfa að ná 13 ára aldri á árinu sem spilað er á.
a) Leikmönnum yngri en 18 ára er óheimilt að spila eða æfa með meistaraflokki, nema að fyrir liggi hjá ÍHÍ undirrituð skrifleg yfirlýsing, sem gefin er út af ÍHÍ og heitir “Leikmaður undir aldri”.

Stjórn ÍHÍ hefur síðan í samræmi við reglur IIHF bætt við þessi skilyrði þannig að þjálfari sem metur leikmanninn hæfan til að spila þarf einnig að undirrita yfirlýsinguna. 

Sama aldursmark gildir fyrir U20 karla og mfl karla þ.e. lágmark 15 ára á almanaksárinu sem leikið er og allir yngri en 18 ára þurfa að skrifa undir yfirlýsingu. 
Fyrir Undir 18 ára keppnisflokk gildir sama lágmark 15 ára á almanaksárinu sem leikið er á en allir þeir sem eru yngri en 16 ára þurfa að undirrita yfirlýsingu. 
Yfirlýsingar þessar má finna á vef IHI undir skjöl. Einnig eru hlekkir hér fyrir neðan. 

Mfl karla og U20 yfirlýsing
U18 ára piltar yfirlýsing
Mfl kvenna yfirlýsing