Víkingar - Jötnar umfjöllun


Frá leik Jötna og Víkinga                                                                                        Ljósmynd: Elvar Freyr Pálsson

Víkingar og Jötnar léku á íslandsmótinu í karlaflokki í gærkvöld og fór leikurinn fram á Akureyri. Leiknum lauk með sigri Víkinga sem gerðu sjö mörk gegn einu marki Jötna.

Segja má að Víkingar hafi komið ferskir inn í fyrstu lotu og áður en hún var á enda höfðu Víkingar gert fjögur mörk án þess að Jötnar næðu ða svara fyrir sig. Andri Már Mikaelsson fór mikinn í lotunni og náði að gera þrennu en síðasta markið átti Lars Foder.

Önnu lotan var í rólegri kantinum og þá sérstaklega hvað markaskorun varðaði því ekkert mark var skorað í lotunni.

Í þriðju lotunni hresstust leikar nokkuð. Jötnar  minnkuðu muninn fljótlega í lotunni en þar var á ferðinni Sigurður S. Sigurðsson. Víkingar voru hinsvegar fljótir að svara fyrir sig og þar var á ferðinni Hafþór Andri Sigrúnarson en þetta er jafnframt fyrsta mark Hafþórs Andra í meistaraflokksleik. Víkingar bættu síðan við tveimur mörkum í seinni hluta lotunnar en þar voru á ferðinni fyrrnefndur Andri Már og Orri Blöndal.

Mörk/stoðsendingar Víkingar: 

Andri Már Mikaelsson 4/0
Lars Foder 1/3
Orri Blöndal 1/1
Hafþór Andri Sigrúnarson 1/0
Björn Már Jakobsson 0/2
Sigurður Reynisson 0/1
Ingþór Árnason 0/1

Refsingar Víkingar: 18 mínútur

Mörk/stoðsendingar Jötnar:

Sigurður Sigurðsson 1/0
Rúnar Rúnarsson 0/1
Sæmundur Þór Leifsson 0/1

Refsingar Jötnar: 10 mínútur

HH