Úrskurður aganefndar 04.11.2004

Aganefnd ÍHÍ
Símafundur haldinn fimmtudaginn 4. nóvember 2004.
Mættir voru: Magnús Einar Finnsson, Kristján Maack og Bjarni Kr. Grímsson
 
Aganefnd 041104.
Fyrir var tekin leikskýrsla úr leik SR og Narfa í mfl. flokki laugardaginn 23. október 2004 og atvikaskýrsla dómara úr sama leik.
Leikmaður SR nr. 17 Guðmundur Björgvinsson fékk Stóra-dómog Brotvísun úr leik (GM) fyrir brotið Kylfuákeyrsla á 30. min leiksins.
Leikmaður Narfa nr. 8 Sami Suni, sem varð fyrir brotinu og þurfti að yfirgefa leikvöllin með 2 brotnar tennur og fara á bráðamóttöku.
 
 
Úrskurður Aganefndar
Samkvæmt reglum ÍHÍ og IIHF hefur aganefnd heimild til að þyngja refsingu fyrir hvert það atvik sem að getið er í leikskýrslu og innifelur Brottvísun úr leik eða þyngri refsingu
Samkvæmt skýrslu dómara eru áverkar þeir sem leikmaður Narfa nr. 8 fékk bein afleiðing af broti leikmanns SR nr. 17.
Það er álit dómara að um hafi verið að ræða ásetningsbrot þó að ekki sé hægt að ætla leikmanninum að hafa ætlað að meiða andstæðingin eins og raunin varð.
Leikmaður  SR Guðmundur Björgvinsson er hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í mfl. flokki.
 
 
 
Akureyri 4. nóvember 2004
 
Aganefnd ÍHÍ
 
Magnús Einar Finnsson,  Kristján Maack, Bjarni Kr. Grímsson