Úrskurður 30. janúar 2004

Aganefnd ÍHÍ
Símafundur haldinn fimmtudaginn 30. janúar 2004.
Mættir voru: Magnús Einar Finnsson, Kristján Maack og Bjarni Kr. Grímsson

Fyrir var tekin leikskýrsla úr leik SA og Bjarnarins í 3. flokki laugardaginn 24. janúar 2004 og atvikaskýrsla dómara úr sama leik.
Leikmaður Bjarnarins nr. 13 Reynir Reynisson fékk Stóra-dóm og Leikdóm (MP) fyrir að berja á leikmanni SA nr. 3 með kylfunni í 3. lotu.

Úrskurður Aganefndar
Samkvæmt reglum ÍHÍ skal hver leikmaður sem fær leikdóm (MP) fá eins leiks leikbann hið minnsta. Þau tilmæli hafa hinsvegar verið frá stjórn ÍHÍ að leikdóm fyrir slagsmál fylgi tveggja leikja bann. Með hliðsjón af því er leikmaður Bjarnarins , Reynir Reynisson, hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í 3. flokki.

Akureyri 30. janúar 2004

Aganefnd ÍHÍ

Magnús Einar Finnsson, Kristján Maack, Bjarni Kr. Grímsson