Úrskurður í aganefnd ÍHÍ

Aganefnd ÍHÍ hélt fund í hádeginu í dag þar sem eftirtaldir leikmenn úr leik Bjarnarins og SA frá því laugardaginn 29.10.2005 voru úrskurðaðir í leikbönn.

Leikmaður SA # 25 Lubomir Bobik, einn leikur í bann.

Leikmaður SA #8 Elmar Magnússon, 3 leikir í bann.

Leikmaður Bjarnarins #68 Brynjar Freyr Þórðarsson 3 leikir í bann.

Þjálfari Akureyrar Jan Kobezda 2 leikir í bann.

Úrskurðir aganefndar verða birtir í heild sinni hér á vef ÍHÍ síðar í kvöld eða í fyrramálið.

Úrskurðina kváðu upp:

Bjarni Grímsson

Jón Heiðar Rúnarsson

Sigurður Sveinmarsson