Úrskurður aganefndar þann 26. febrúar 2026

Teknar eru fyrir 2 atvikaskýrslur dómara frá leik Fjölnis og SR í Toppdeild kvenna frá 22. febrúar 2026. Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslur dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikin. Atvikaskýrslur eru ritaðar vegna þess að leikmenn fóru á spítala til nánari skoðunar.

Málsatvik:
Mál 1 Á tímanum 58:31 er leikmaður SR #93 felld af leikmanni FJO  #29. Leikmaður SR fellur og rennur á rammann með höfuð á undan.  Dómari leiksins eftir samráð við línumenn, gaf leikmanni FJO #29 2 mínútna brottvísun fyrir Boarding. 

Mál 2 Á tímanum 58:59 er leikmanni SR, #19,  ýtt út í ramman af leikmanni FJO #13. Dómari kallaði til sín línumenn til samráðs og ákvað síðan að gefa 2 mínútna refsingu fyrir Boarding. 

Úrskurður:
Eftir að hafa farið ýtarlega yfir atvikaskýrslu dómara og skoðað upptöku frá streymi leiksins er niðurstaða nefndarinnar að ekki sé með nokkru móti hægt að sjá á þeim gögnum sem nefndin hefur til skoðunar, að leikmennirnir sem hér um ræðir aðhafist nokkuð sem reglur leiksins ná ekki yfir, ekki er hægt að sjá að um ásetningsbrot sé að ræða, eða annað sem skýrt geti möguleg meiðsli andstæðinga þeirra.  Nefndin telur því að ekki sé ástæða til þess að aðhafast frekar vegna málsins.