Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara frá leik SA og SR í úrslitakeppni Toppdeildar Karla frá 12. janúar 2026, sem leikin var í Skautahöllinni á Akureyri. Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið. Streymið sýnir ekki atvikið sjálft en aðdragandann og eftirmála nokkuð vel.
Málsatvik:
Leikmaður SA númer 23 ýtir við leikmanni SR númer 92 sem fellur við og dregur leikmann SA með sér niður, þegar þeir standa upp þá byrja þeir að slá hvorn annan og leikmaður SR keyrir kylfuna sína í andlitið að leikmanni SA.
Dómarar leiksins gáfu leikmanni SR númer 92, 5 mínútna dóm auk brottvísunar úr leiknum (GM) fyrir Kylfuákeyrslu (e. Cross check) samkvæmt reglu 59.3.
Þegar línudómari var að fylgja leikmanninum af svellinu var leikmaðurinn mjög dónalegur gagnvart dómurum leiksins.
Úrskurður:
Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur númer 92, Ævar Arngrímsson hlýtur einn leik í bann.