Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara frá leik Fjölnis og SR í deildarkeppni U16 Karla frá 6. nóvember 2026, sem leikin var í Egilshöll. Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið.
Málsatvik:
Leikmaður SR, nr. 77, skautaði á leikmann Fjölnis, nr. 68, með þeim afleiðingum að leikmaður Fjölnis féll í ísinn. Dómari leiksins mat atvikið sem tripping og dæmdi tveggja mínútna brottvísun á leikmann SR nr 77. Þegar dómari flautaði til að gefa til kynna brotið brást leikmaður SR, nr. 77, reiður við og hóf að öskra á dómarann. Dómarinn veitti leikmanninum munnlega áminningu og vísaði honum í refsiboxið.
Á leið sinni í refsiboxið hélt leikmaðurinn áfram að sýna dómaranum óvirðingu með óviðeigandi orðum, þrátt fyrir áminninguna. Dómarinn ákvað því að bæta við tveggja mínútna refsingu fyrir óíþróttamannslega hegðun.
Við þá ákvörðun jókst reiði leikmannsins enn frekar og hann hélt áfram að beina grófu og óviðeigandi orðbragði að dómara leiksins. Í ljósi ítrekaðrar og stigvaxandi óíþróttamannslegrar hegðunar ákvað dómarinn að lokum að dæma leikmanninn 5 + 20 mínútna refsingu fyrir Abuse of Officials, sem leiddi til þess að honum var vísað úr leik.
Fram kemur í dómaraskýrslu að umræddur leikmaður hafði áður í leiknum fengið ítrekaðar munnlegar áminningar frá báðum dómurum leiksins vegna orðaforða síns, án frekari afleiðinga.
Úrskurður:
Aganefnd ÍHÍ hafði nýlega borist erindi frá stjórn ÍHÍ þar sem farið er fram á það að Aganefndin taki af fullum þunga á brotum sem beinast gegn dómurum leiks. Þetta er vegna þess að sá misskilningur virðist fara vaxandi að leikmenn hafi heimild til þess að ræða hin ýmsu mál við dómara leiksins. Rétt er hér að taka fram að leikmönnum er með öllu óheimilt að ávarpa dómara leiksins. Fyrirliðar eru þeir einu sem geta rætt við dómara einungis ef dómari heimilar það. Aganefnd ÍHÍ hefur jafnan tekið hart á öllu áreyti í garð dómara. Nýlegt erindi stjórnar ÍHÍ undirstrikar hversu mikilvægt það er að leikmenn átti sig á því hratt og örruglega að þetta er ekki ásættanleg framkoma. Í ljósi þess að leikmaðurinn er yngri en 18 ára er nafn hans ekki birt.
Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur númer 77, hlýtur tveggja leikja bann sem er alsherjarbann. Aganefnd mun fylgjast með framkomu umrædds leikmanns í garð dómara og er tilbúin að beita áframhaldandi þyngri refsingum láti leikmaðurinn ekki af þessari hegðun.