Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara frá leik SR og Fjölnis í Toppdeild karla frá 25. okt. 2026. Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið.
Málsatvik:
Leikmaður Fjölnis númer 92 er að beygja út úr sínu eigin varnarsvæði til að fylgja eftir skyndisókn (turnover)Leikmaður SR númer 14 kemur á rennsli (glide) inn í varnarsvæðið og tæklar leikmann Fjölnis. Dómari leiksins mat ákreyrsluna sem ákeyrslu á höfuð og háls og gaf leikmanni SR númer 14, 5 mínútna dóm í samræmi við reglu 48,3 ásamt brottvísun úr leiknum.
Við nákvæma greiningu á beinu streymi atviksins hjá aganefnd er ekki að sjá að leikmaður SR númer 14 beini tæklingu að háls eða höfði leikmanns Fjölnis. Leikmaður SR tekur ekki eitt skautaskref eftir að hann kemur inn í myndrammann sem er vel fyrir utan bláu línu. Leikmaðurinn liftir ekki hendi og engin merki eru um að höfuð leikmanns Fjölnis kastist til vegna ákeyrslunnar. Hreyfing á höfði er oftast fyrsta vísbending um að tæklingu hafi verið beint að hálsi eða höfði. Hinsvegar sést vel í svona ramma greiningu, að leikmaðurinn fellur afturábak við höggið og hnakki hans skellur í svellið.
Úrskurður:
Að framansögðu er aganefnd sammála um að ekki sé efnisleg ástæða til þess að aðhafast frekar.