Úrskurður aganefndar 27. mars 2026

Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara frá leik SA Jötna og Fjölnis í Toppdeild Karla (B-hluta eða U22)  frá 21. mars 2026. Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið. 

Málsatvik:
Leikmaður Húna númer svartur #14 fellir einn leikmann Jötna, dómari leiksins setur hendina upp fyrir biðdóm á leikmanninn. Jötnar halda sókninni áfram. Rauður #78 fellir svartan #14 með því að setja kylfu í fætur hans. Strax á eftir þá sprettur svartur #14 á fætur í átt að rauðum #78 og keyrir með kylfuna í höfuð hans. Rauður #78 fellur í svellið og svartur #14 hendir sér á hann og kýlir hann ítrekað. Dómari leiksins gaf svörtum #14 5mínútna dóm auk brottvísunar úr leiknum (GM dóm) samkvæmt reglu 59.3, Kylfuákeyrsla (e. Cross-Checking)

Úrskurður:
Aganefnd er lýtur þetta atvik alvarlegum augum. Ofsafengin viðbrögð leikmannsins er hegðun sem hreyfingin getur ekki sætt sig við. Nefndin ákvað að nýta sér nýfengna heimild til að taka mið af brotasögu leikmanna við ákvörðun refsingar. Leikmaður Húna, svartur #14, Bergþór Ágústsson hlýtur 3 leiki í bann. Bannið er alsherjarbann.