Úrskurður aganefndar 23. nóvember 2026

 

Teknar eru fyrir atvikaskýrslur dómara frá leik Fjölnis og SR í deildarkeppni Topp deild Karla frá 20. nóvember 2026, sem leikin var í Egilshöll.(mál 1 og 2) Einnig er tekið fyrir atvik sem varð í leik SA og Fjölnis í Topp deild karla á Akureyri 14. nóvember 2026. (mál 3).


Mál 1

Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið.

Málsatvik:
Leikmaður Fjölnis nr. 21 er tæklaður aftanfrá af leikmanni SR nr. 23 þar sem hann stendur nálægt battanum í stellingu til þess að taka við sendingu frá samherja sem var að koma upp með pökkinn. Dómari leiksins gaf 2 mínútna brottvísun fyrir boarding en skrifar síðan atvikaskýrslu þar sem leikmaðurinn kom ekki meira við sögu í leiknum. Við mat á atvikinu er ljóst að Leikmaðurinn er ekki með pökkinn (hefur ekki tekið við sendingu) og er þess vegan ekki fair game. Tæklingin er í bak þess sem fyrir henni verður, hann er algerlega blindur fyrir því sem er að fara að gerast og hefur ekki tök á að verja sig. Leikmaðurinn kastast með höfuð í glerið á rammanum og fellur niður.

Úrskurður:
Aganefnd er sammála um að tækling þessi fer í flokk hættulegra tæklinga þar sem hún er algerlega blindandi fyrir þann sem verður fyrir henni verður. Auk þess sem leikmaðurinn var ekki með pökkinn. Leikmaður Fjölnis fékk einkenni heilahrinstings og gat ekki haldið áfram að spila. Með athæfi sínu kom SR leikmaðurinn í veg fyrir að leikmaður Fjölnis gæti leikið áfram. Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur númer 23, Hákon Marteinn Magnússon hlýtur tveggja leikja bann.

 

Mál 2
Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið.

Málsatvik:
Leikmaður SR nr. 17 er tæklaður aftanfrá af leikmanni Fjölnis nr. 15. Leikmenn SR 17 og FJO 84 eru í baráttu um pökkinn niður í horni hægra megin. Þá kemur leikmaður Fjölnis nr. 15 skautandi að og í stað þess að reyna að ná í pökkinn tæklar leikmann SR númer 17 aftan frá í bakið, á rammann og í glerið. Leikmaður SR þurfti aðhlynningu inn á ís og kom ekki frekar við sögu í leiknum. Dómari leiksins gaf leikmanni Fjölnis 5+GM fyrir Boarding.

Úrskurður:
Það sama á hér við að aganefnd er sammála um að tækling þessi fer í flokk hættulegra tæklinga þar sem hún er algerlega blindandi fyrir þann sem verður fyrir henni verður. Með athæfi sínu kom Fjölnis leikmaðurinn í veg fyrir að leikmaður SR gæti leikið áfram. Leikmaður Fjölnis númer 15, Viktor Svavarsson hlýtur tveggja leikja bann.

 

Mál 3
Nefndin hefur leikskýrslu leiks, og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið. Ástæða þess að atvikið er skoðað er að leikmaður Fjölnis fær heilahristing sem orsakar það að hann verður ófær um að spila og æfa. Aganefnd líkt og oft áður hefur það viðmið að fara sérstaklega yfir þau atvik þar sem upp koma meiðsli leikmanna. Það á við í þessu tilviki.

Málsatvik:
Leikmaður Fjölnis nr. 14 er fær kylfuákeyrslu (Cross check) á höfuð og háls svæði frá leikmanni SA númer 91. Leikmaður SA númer 91 er að brjótast í gegnum vörn Fjölnis þegar leikmaður Fjölnis númer 14 stöðvar hann og fellur niður í ísinn við átökin. Þegar hann er að rísa upp á ný heggur leikmaður SA nr 91 til höfuðs og háls svæðis hans með báðar hendur á kylfu. Cross Check þannig að leikmaðurinn fellur á bakið niður á svellið.

Úrskurður:
Þetta brot er bæði hættulegt og fólskulegt. Eitthvað sem ekki undir neinum kringumstæðum getur talist ásættanlegur hluti af leiknum. Leikmaður SA númer 91, Daniil Fursa hlýtur tveggja leikja bann.