Aganefnd hefur skoðað atvik vegna dómaraskýrslu sem barst eftir leik Fjölnis og SR í Atlantic Cup 27. sept. 2026. Dómari leiks ritaði dómaraskýrslu um atvikið eftir leik í rafrænt skilakerfi dómara en í stað þess að skýrslan áframsendist sjálfkrafa sat hún föst og aganefndin hafði ekki af henni spurnir fyrr en bilunin í rafrænu skilakerfi dómara uppgötvaðist.
Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara frá leik SR og Fjölnis í Mfl. kvenna í Atlantic Cup frá 27. sept. 2026. Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið.
Málsatvik:
Á dómurum ÍHÍ hvílir sú skylda að þeir skili inn atvikaskýrslu dómara (dómaraskýrslu) ef leikmenn meiðast og eru óleikfærir það sem eftir lifir leiks. Atburðarásin er svona. Leikmaður Fjölnis nr. 11 sækir pökkinn í varnarsvæði sínu. Leikmaður SR nr. 6 pressar á leikmanninn og keyrir á hann. Samkvæmt atvikaskýrslu sáu dómarar leiksins ekki brotið. Upptaka leiksins er því eina gagnið sem nefndin getur notað við mat á atvikinu. Svo óheppilega vill til að nákvæmlega á þessum stað dettur myndin út úr fókus, en samt ekki það mikið að hægt sé að átta sig á atburðinum.
Úrskurður:
Aganefndin er sammála því að þarna hefði dómari leiks mátt gefa leikmanninum litla dóm (minor penalty) fyrir ólöglega ákeyrslu. Annað er ekki að sjá og nefndin sér því ekki ástæðu til þess að aðhafast frekar.