Úrskurðir aganefndar 25.10.12

Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik SR Fálka og Húna  í meistaraflokki karla sem leikinn var þann 23.10.2012.

1. Leikmaður Húna nr. 6 Andri Már Helgason fékk brottvísun úr leik (GM) fyrir endastungu (Butt Ending).

Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

2. Fyrrnefndur leikmaður fór upp í áhorfendastúku í stað þess að yfirgefa keppnisstað eða halda til í leikmannaklefa.

Úrskurður: Leikmaðurinn hlýtur einn leik í bann. Bannið er allsherjarbann.

Fh. Aganefndar

Viðar Garðarsson
formaður