ÚRSKURÐIR AGANEFNDAR 14.11.12

Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik SR Fálka og Bjarnarins  í meistaraflokki karla sem leikinn var þann 13.11.2012.

Leikmaður Bjarnarins nr. 88 Brynjar Bergmann fékk brottvísun úr leik (GM) fyrir slagsmál (Roughing).

Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

Leikmaður SR Fálka nr. 12 Viktor Örn Svavarsson fékk brottvísun úr leik (GM) fyrir  að vera þriðji maður inní slagsmál (Roughing).

Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann. 

Viðar Garðarsson
formaður aganefndar.