Uppfærð mótaskrá

Út er komin ný mótaskrá og má finna hana undir "Leikjadagskrá" hér vinstra meginn á síðunni. Mótaskráin hefur númerið 2.1 og því aðrar útgáfur ógildar.
Töluverðar breytingar þurfti að gera frá síðustu skrá þar sem komið er U20 heimsmeistaramót í desember en það lið mun ferðast til Tallinn í Eistlandi. Einnig hefur nöfnum þeirra liða sem Skautafélag Akureyrar sendir til keppni verið breytt þannig að nú er SA komið fram fyrir nöfn liðanna.
HM-mót kvenna, sem haldið verður í lok mars í Reykjavík, hefur verið fært fram eftir að það var samþykkt á haustþingi IIHF. 

Myndina tók Sigurgeir Haraldsson
HH