Uppfærð mótaskrá

Komin er út uppfærð mótaskrá og má finna hana hérna vinstra megin á síðunni undir leikjadagskrá. Úrslitakeppni karla hefur verið sett inn í mótaskránna en einnig hefur bæst við Bæjarkeppnin en hún er sett á 13. mars. Um er að ræða keppni milli Akureyrar og Reykjavíkur en áður en íslandsmótið kom til var Bæjarkeppnin helsta keppni í íshokkí á Íslandi. Einnig hefur verið bætt við svokölluðu "draft" móti í 3ja flokki og er áætlað að það verði 20. mars en unnið er aðþví að finna ístíma fyrir það mót. Dómaraskrá sem gildir til loka tímabilsins er einnig komin inn í leikjadagskrá svo dómarar jafnt sem línudómarar geta séð á hvaða leiki þeir eru settir.

Myndina tók Elvar Freyr Pálsson

HH