U20 - Norður Kórea dregur sig úr keppni

Samkvæmt heimasíðu Alþjóða Íshokkísambandsins hefur Norður-Kórea dregið sig úr heimsmeistaramóti landsliða skipað leikmönnum 20 ára og yngri í III deild. Mótið er á dagskrá í janúar nk. og Ísland er meðal þátttökuþjóða í riðlinum

Engar ástæður eru gefnar fyrir því að liðið er dregið til baka en unnið er að því að búa til nýja dagskrá sem við fáum vonandi fljótlega í hendurnar.

HH