U20 - Heimsmeistaramót

Þessa dagana stendur yfir í Buffalo í Bandaríkjunum U20 heimsmeistaramótið í efstu deild. Í kvöld og nótt fara fram undanúrslitaleikirnir. Fyrri leikurinn er á milli Svía og Rússa og hefst sá leikur klukkan 20.30. Seinni leikurinn er síðan leikur Bandaríkjamanna og Kanada og hefst sá leikur klukkan 00.30. Bandaríkjamenn léku eimitt í úrslitum gegn Kanadamönnum á síðasta tímabili og þá unnu þeir fyrrnefndu með sex mörkum gegn fimm í framlengdum leik.

Í gær mátti sjá á netinu leik kanadamanna og svisslendinga í beinni útsendingu á netinu í góðum gæðum. Einnig má sjá hápunktana úr leikjunum  ásamt öðru efni. Leikina í kvöld ætti að vera hægt að horfa á hér.

Mynd: IIHF

HH