U20 ára landslið

Athugulir lesendur ÍHÍ síðunnar ráku augun í að birtur hefur verið listi yfir þá leikmenn sem valdir hafa verið í U20 landslið Íslands.

Einsog fram kemur í fréttinni er ekki um fullnaðarlista að ræða en fljótlega verður bætt við 1 - 2 leikmönnum. Um langt og erfitt ferðalag er að ræða. Flogið verður til London og þaðan áfram til Seoul í Suður-Kóreu. Frá Seoul er síðan flogið til Auckland og þá loksins er liðið farið að nálgast keppnisstað.

Fljótlega koma fleiri fréttir af ferðalagi þessu og því mikilvægt fyrir þá sem hafa verið í kringum hópinn að fylgjast með tenglinum fyrir U20 liðið.

HH