Verð farmiða ofl.

Þá er komið verð á farmiða pr. leikmann. Verðið er kr. 35.000.- Greiðslutilhögun verður auglýst nánar hér undir U18 tenglingum fljótlega.

Við erum einnig komnir með birgðir af harðfiski hér í Reykjavík aftur og á morgun verður líka kominn fiskur á Akureyri. Við viljum eindregið beina því til leikmanna að þeir hjálpi foreldrum sínum að kljúfa kostnað vegna ferðalagsins með því að selja harðfisk.

Þeir sem enn eiga eftir að skila inn upplýsingum um vegabréfsnúmer og þess háttar eru beðnir um að gera það sem fyrst.

HH