Ferðastyrkur

Stjórn ÍHÍ ræddi á fundi sínum í gær hvort og hvernig landsliðsmenn sem eru að mæta á landsliðsæfingar yrður styrktir. Eftirfarandi var bókað í fundargerð:

Ákveðið að greiða ferðastyrk kr. 3.500 pr. leikmann á hverja landsliðsæfingu. Ákveðið að styrkir yrðu greiddir gegn framvísun kostnaðarkvittunar, s.s. bensínnótu eða annars sannarlegs kostnaðar.

Þeir sem þarfnast frekari upplýsinga hafi samband við Hallmund í síma 514-4075 eða á ihi@ihi.is. Ekki verður borgað vegna fyrstu æfingabúða (Try-out).

HH