Undirbúningur ofl.

Það styttist óðum í að liðið haldi til Tyrklands og undirbúningur er í fullum gangi. Styrktarbréf eru tilbúin og þið sendið bara póst á ihi@ihi.is ef ykkur vantar þau. Þeir sem enn eiga eftir að skila inn upplýsingum um sig varðandi vegabréf og fleira eru beðnir að gera það hið fyrsta. Leikmenn sem eru á einhverskonar lyfjum, t.d. vegna astma eða þvagfærasýkingar eru beðnir að hafa samband svo hægt sé að tilkynna þetta til Alþjóða Íshokkísambandsins. Einnig fer að styttast í að leikmenn þurfi að greiða miðann og þeir því beðnir um að fylgjast með tenglinum hérna.

HH