4. keppnisdagur

Sergei þjálfari hafði ákveðið að taka daginn rólega og því var ræst frekar seint eða rétt um klukkan níu. Morgunmatur var etinn og síðan haldið út í rútu. Áfangastaðurinn var garður nálægt skautahöllinni en í stað ísæfingar var farið í göngutúr þar en einnig reyndu menn fyrir sér í gogart bílum og ýmsu fleiru. Á meðan fóru fararstjórar að leita að einhverju fyrir liðið að gera á laugardaginn, en þá er seinni frídagurinn í mótinu. Allir voru síðan mættir um tólfleytið í hádegismat ásamt því sem þjálfarinn fundaði með leikmönnum. Sergei skipaði síðan hvíld fram að brottför á leik og um tvöleytið var lagt í hann niður í skautahöll. Þegar þangað var komið hljóp sá sem þetta skrifar í næsta stórmarkað að kaupa banana handa liðinu. Heimamenn horfa enn nokkuð mikið á á þá sem eru öðruvísi í útliti, en maður uppdressaður í jakkafötum með bindi sem kaupir ekkert nema þrjá fulla poka af banönum vakti að sjálfsögðu enn meiri athygli og bros sást á allmörgum heimamönnum. Um leikinn sjálfan sem slíkan, verður fjallað um í annarri grein en það voru hálf daprir leikmenn sem mættu í kvöldmat á hótelið. Von um að komast upp um deild er þó langt frá því að vera fjarlægur draumur, enn eru tveir leikir eftir og allt getur gerst. Kveðja frá Kína.

HH