Ýmislegt

Eins og gefur augaleið þá er undirbúningur okkar vegna ferðarinnar kominn á lokastig. Við fundum með leikmönnum í kvöld klukkan 21.00 í Skautahöllinni í Laugardal og mikilvægt er að allir mæti. Við viljum líka benda foreldrum á að fara vel yfir töskur með leikmönnum, hvert kíló í yfirvigt kostar 800 krónur og þetta er fljótt að telja. Við fengum upplýsingar um hótelið og hér má sjá tengil á það. Á þessum tengli hér og síðan farið í W18III munu birtast úrslit úr leikjum í keppninni en að sjálfsögðu munum við líka birta fullt af fréttum á U-18 linknum á heimsíðunni okkar. Hér er svo dagskrá, þ.e. leikir, hvenær við erum að æfa ofl. sem gott er að prenta út.

HH