Gisting.

Einsog þið getið rétt ímyndað ykkur þá er þessi keppni þaulskipulögð hjá Kínverjunum. Nú hef ég fengið beiðni um að fylla út hvaða leikmenn verða saman á herbergi. Um er að ræða tveggja manna herbergi og þið sendið mér bara póst á ihi@ihi.is ef það eru einhverjar óskir um að vera saman á herbergi. Ég raða svo bara þeim sem á eftir koma saman sjálfur. Ég vill líka ítreka að það er foreldrafundur í Skautahöllinni á morgun miðvikudag klukkan 20.00. Endilega látið foreldra ykkar vita því við viljum fá sem flesta foreldra á staðinn.

HH