Endanlegur listi og fleira.

Sergei Zak hefur sent frá sér endanlegan lista með nöfnum þeirra sem valdir voru til að keppa með U-18 í Bejing í Kína. Listinn er hér. Núna býður ÍHÍ eftir svokölluðu "invitation letter" (boðsbréfi) frá mótshöldurum í Kína. Á meðan þurfum við að vinna í umsóknum þannig að þær verði tilbúnar þegar boðsbréfið kemur. Hérna eru leiðbeiningar um hvað þarf að koma fram og ég vil benda sérstaklega á að í lið númer eitt er talað um að vegabréfið þurfi að hafa gildistíma næstu sex mánuði. Hérna er síðan umsóknin sem þið þurfið að fylla út og vinsamlegast vandið ykkur. Ég er líka að ganga frá bréfi sem þið getið notað til að sækja um styrki og ætti það að verða tilbúið í dag eða á morgun. Það er best að senda mér tölvupóst ef það er eitthvað sem ykkur vantar að vita, netfangið er ihi@ihi.is. Munið svo að kíkja á U-18 linkinn öðru hvoru ef það skyldi vera eitthvað sem ég þarf að koma til ykkar.

HH