U18 æfingabúðir

Hér á eftir koma helstu atriði varðandi æfingabúðir U-18 liðsins um helgina.

Mæting er klukkan 12.00 við Egilshöll.

Allir drengirnir nema þeir sem gista hjá ættingjum sínum gista í Hrafnagilsskóla.

Verð pr. mann er kr. 8.000 og innfalið í því eru rútuferðir, gisting og matur bæði meðan liðið er á ferðinni og einnig fyrir norðan. Hver og einn verður að hafa með sér svefnpoka og kodda.

Æfingaplanið er hér og ég minni leikmenn á að koma með útbúnað líka fyrir off-ice.