U12 mót frestað vegna covid

U12 mótið okkar sem fyrirhugað var á Akureyri um næstu helgi hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Lögreglan hefur óskað eftir því við íþróttafélög að fresta viðburðum barna og unglinga til  að stemma stigu við faraldurinn.

Skilaboð lögreglunnar;

Höfum við miklar áhyggjur af stöðunni og teljum nauðsynlegt að allir hugi að sinni stöðu og vegi og meti hvað hver geti gert til að stoppa þá útbreiðslu sem er í gangi í dag. Ljóst er að sá aldur sem hvað mest virðist smitast í dag eru börn og unglingar á grunnskólaaldri, þá sér í lagi sá aldur sem ekki er bólusettur.
Aðgerðarstjórn LSNE vill því beina þeim tilmælum til þeirra sem hafa með æskulýðs- , íþrótta- og félagstarf að gera hjá börnum og unglingum á grunnskólaaldri að fresta viðburðum, fundum og æfingum fram yfir næstu helgi. Með því vonumst við til að ná það vel utan um þessa stöðu sem uppi er að þá verði hægt að mælast til þess að slík starfsemi komist aftur af stað. Í tengslum við þetta höfum við átt samtal við bæjar- og sveitarstjóra á Norðurlandi eystra sem telja að sama skapi nauðsynlegt að beina þessum tilmælum inn í okkar samfélag.