Tveir síðustu leikirnir í undankeppni meistaraflokks karla

Í dag klukkan 16:00 eigast við í Egilshöll Björninn og Narfi en þessi lið koma til með að etja kappi um 3 sæti í úrslitakeppni. Klukkan 19:00 í kvöld í Laugardalnum eigast svo við Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar. Þetta eru liðin sem að koma til með að keppa um Íslandsmeistaratitilinn í úrslitakeppni sem að hefst innan skamms. Þessir tveir leikir eru síðustu leikir undankeppninar í meistaraflokki karla og hafa í raun enga þýðingu nema sálfræðilega þar sem að liðin eru í óða önn að undirbúa sig fyrir úrslitakeppni.