Tveir leikir í kvennaflokki um helgina

Kvennalið Skautafélags Akureyrar sótti Björninn heim nú um helgina í tvíhöfðaviðureign.  SA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í þessum flokki um síðustu helgi og því var litið á þessa leiki fyrst og fremst sem undirbúning fyrir komandi átök á Heimsmeistaramótinu sem hefst síðar í þessum mánuði.
 
SA var sem fyrr sterkari aðilinn í báðum leikjum og vann nokkuð örugglega, þann fyrri 6 - 1 og þann seinni 8 - 0.
Í fyrri leiknum voru markaskorar SA; Birna 1, Sólveig 1, Arndís 1 og Sarah 3.  Fyrir Björninn skoraði Ingibjörg.
Í seinni leiknum skoruðu fyrir SA Sólveig 3, Blöndal 1, Sigrún 2 og Sarah 2.  Leikskýrsla liggur ekki fyrir að þessu sinni og því eru tölulegar upplýsingar ekki nákvæmari.