Tveir leikir í dag

Í dag verða tveir leikir í Íslandsmóti meistaraflokks karla og fara báðir leikirnir fram á Akureyri.  Kl. 17:00 taka heimamenn í Skautafélagi Akureyrar á móti Birninum í miklum spennuleik, því þessi tvö lið berjast nú um sæti í úrslitum og hvert stig skiptir máli.  Þessi viðureign verður sú fjórða í vetur sem af er tímabili hefur Björninn borið sigur úr býtum í tvígang en SA einusinni.

KL 20:00 í kvöld tekur svo Narfi á móti Skautafélagi Reykjavíkur en bilið á milli þessara liða er breitt á stigatöflunni.  SR er efst og nú þegar búið að tryggja sér sæti í úrslitum á meðan Narfi vermir botnsætið.  Þó er gert ráð fyrir athyglisverðri viðureign í kvöld því SR leikur án nokkurra lykilmanna.  Allir íshokkíáhugamenn eru hvattir til að mæta í Skautahöllina á Akureyri og sjá skemmtilegar viðureignir.