Tveir leikir á Akureyri í dag

Í dag takast SA og Björninn á í tveimur flokkum.  Fyrri leikurinn hefst kl. 17:00 og þá eru það kvennaflokkarnir sem mætast og nú er mikið í húfi fyrir bæði lið.  Íslandsmótið hefur aldrei verið eins spennandi í kvennaflokki og nú í ár og litlu munar á liðunum.  Vinni SA stelpur í dag hafa þær tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn 6. árið í röð.  Vinni Björninn verður um hreinan úrslitaleik að ræða í síðustu viðureign liðanna sem fram fer síðar í þessum mánuði.
 
Strax á eftir kvennaleiknum er komið að 2. flokki.  Líkt og í kvennaflokknum er mikil spenna hjá strákunum.  Allir hafa unnið alla og svo virðist sem heimavöllurinn ætli að ráða úrslitum.  Þeir sem vilja horfa á skemmtilegt hokkí eru eindregið hvattir til að láta sjá sig á áhorfendapöllunum í dag.