Tveir leiki í 2. flokki um helgina

Í kvöld klukkan 18:15 mætast í Egilshöllinni Björninn og Skautafélag Akureyrar í 2. flokki en sömu lið munu aftur takast á í fyrramálið kl. 08:30 á sama stað.  Breyting var gerð á aldursskipan í 2. flokki fyrir þetta tímabil og nú spila saman leikmenn fæddir 1987 - 1990, þ.e.a.s. segja má að gamli 1. flokkur hafi verið endurvakinn og sameinaður 2. flokki.
 
Fyrir íshokkíáhugamenn þá er alger skylda að fylgjast með þessum leikjum því þeir eru jafnvel fjörugri en meistaraflokkleikirnir, mikill hraði, spenna og hasar.  Um að gera að skella sér í Egilshöllina um helgina og horfa á skemmtilegt hokkí.