SA Víkingar spila í tilefni af Bleikum október, átakinu gegn krabbameinum hjá konum. Liðið, sem venjulega spilar í rauðu, mun klæðast sérhannaðri bleikri keppnistreyju með bleiku slaufuna yfir hjartanu.
Leikurinn er „Hundraðkrónuleikurinn“, að sænskri fyrirmynd („Enkronasmatchen“). Aðgangur kostar aðeins 100 kr. og gestum er frjálst að leggja meira af mörkum. Allur ágóði leiksins rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis (KAON) Söfnunarreikningur er 0162-05-261155 kt. 630295-2709
Pekkjakast
Í öðru leikhléi geta gestir keypt pökk og kastað honum út á svellið. Sá sem kemst næst miðpunktinum hlýtur bleika keppnistreyju SA Víkinga merkta fyrirliðanum, #10 Leifsson.
Styrktaraðilar
Hundraðkrónuleikurinn er í boði Eltech ehf. og Múrey ehf., tveggja fyrirtækja á Akureyri sem gerðu leikinn mögulegan.
Á myndinni má sjá fyrirliða SA þá Jóhann Leifsson C (í miðju) Hafþór Sigrúnarson A (til vinstri) og Heiðar Jóhannsson A (til hægri) máta treyjurnar.