Tölfræði

Aðeins er byrjuð vinna í tölfræðinni en einsog sjá má þegar kíkt er á hana er hún ekki alveg rétt þar sem sum nöfn koma tvisvar sinnum fyrir. Þetta er vonandi hægt að lagfæra fljótlega. Gauti Þormóðsson og Daniel Kolar eru samkvæmt þessu hnífjafnir og reyndar toppa SR-ingar þrjú efstu sætin um þessar mundir.

Í brottvísunum fær Daði Örn Heimisson þann vafasama heiður að nýta tíma sinn best miðað við fjölda leikinna leikja en Daniel Kolar hefur flestar mínútur utan vallar.

Fljótlega munu vonandi aðrir flokkar koma inn og næst á dagskránni er meistaraflokkur kvenna.

Myndina tók Sigurgeir Haraldsson

HH